bad things are the reason for good things!
15.11.2006 01:03:46 / Snaevar

Það sem ég hugsa..


*það er óóveður
*og ískalt
*það sprakk bjór í bílnum mínum í nótt útaf því
*staffapartý-ið á föst. var skemmtilegt
*ballið á barnum var ennþá skemmtilegra
*i was rather much under the influence
*hitti víst fleiri þar en ég hélt ég hefði gert
*laugardags-ballið með úff tókst betur en ég gerði von fyrir
*annað svoleiðis kannski í lok des?
*jólaskraut farið að týnast upp útum allt?!
*og jólalög í útvarpinu í þokkabót?
*kannski að klára nóvember fyrst?
*myrkur svona 20 tíma sólahringsins
*i like it
*sakna erlu
*hún er í danmörku
*síminn minn er snældu-vitlaus
*dagarnir í stuttu máli sagt: skóli, lyfta, talvan, vinna & sofa
*þoli ekki svona daga: 'skóli frá8-18&vinna18-23'
*hálfur mánuður, sirka, í að þessi önn í skúl klárist
*þá eru sko jól
*er heima hjá bigga löggu núna...
*í alvöru
*með halla & hreinsa
*búnað borða alltof mikið af pizzu í kvöld
*paintball - the game er illa ávanabindandi leikur ( www.leikjanet.is )
*fyrstu 16 sekúnturnar í laginu Pose með JT eru gúdsjit
*smooth bass & snoop díódobblg klikkar ekki
*arnar þór að flytja suður eftir áramót
*þá heimsækjir maður borgina kannski oftar en þrisvar sinnum á ári
*sakna erlu
*það er hált úti
*búnað detta einu sinni
*er fótbrotinn á báðum löppum

?

vissuði það að það á að breyta lögunum í að taka bílpróf? hækka aldurinn í að taka það uppí 18 ára og þá má maður bara vera með einn farþega, þangað til maður verður 20 ára og nælir sér í fullnaðarskírteini? og bara eftir áramót á þetta allt að gerast..! maður er að heyra þetta

Núna er nýjasta kommentið í gestabókinni minni orðið 1 árs gamalt8|8|

Lög í spilun these days:
Fræ - Hlauptu Á Stað
Ludacris - Act A Fool
John Frusciante - Omission
The Mars Volta - Inertiatic Esp
Jamiroquai - Deeper Underground
Snoop Dogg - Smokin Smokin Weed
The Mars Volta - Cassandra Gemini I
Queens Of The Stona Age - In My Head


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 00:29:42 / Snaevar

Þegar vel gengur, líður mér vel.

Kveldið

Langaði að henda inn einu stykki bloggi svona í flýti. Maður er nýkominn heim af menningarkvöldinu, þrusu gaman verð ég að segja, fyrir utan það að bassinn minn var alltaf að deyja þegar ég var að spila :/ djöfussinss drasl!
Svo erum við að reyna að komast í stúdíó einsfljótt og hægt er, mig langar svo að prófa að vinna með tónlist í stúdíói.. I must!!
*Barinn að opna á laugardaginn, það á eftir að verða troðið!!
*Er að fýla veturinn, þægilegt að fara sofa og vakna í myrkri.
*Djöfull gekk mér vel í prófunum.. 9,2 í meðaleinkun á 6 prófum!! skil ekki hvernig ég fór að þessu. *varð að monta mig aaðeins*

Ein pæling líka sem ég var að spá í þegar heimasíminn var að reyna vekja mig snemma í morgun.. Ég persónulega nenni aldrei að svara í hann, ég meina maður á gsm síma og það er nóg, heimasímar eru að verða útdauðir held ég.

enjá, núna verð ég að fara að reyna ná hægri linsunni úr auganu á mér, náði bara vinstri áðan:haha: kann ekki á linsur.. yet.

frekar innihaldslítið blogg, en blogg þrátt fyrir það:)

Nokkur lög dagsins:
Wolf Parade - Dear Sons and Daughters of Hungry
Dr. Mister & Mr. Handsome - Dirty Slut
The Mars Volta - Tetragrammaton
Tony Yayo - I'm So High
Keane - Crystal Ball
Hjálmar - Lindin

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 13:17:51 / Snaevar

titillitit



Hálfur mánuður uppá dag síðan ég bloggaði seinast, maður er kannski ekki alveg jafn iðinn við þetta og maður ætlaði sér. En prófvikan laumaði sér þarna inná milli, þannig ég hef alveg fínustu afsökun þar. Helgin var góð:

Föstudagskvöld: Fór heim til Davíðs vopnaður nokkrum ísköldum bjórum, þar var e-h af fólki og við fórum síðan á mjög ölvaða hljómsveitaræfingu, síðan áður en maður vissi af var maður kominn útí varmahlíð í sumarbústaðapartý með heita pott og læti. Svo sprakk það partý með rifrildi á milli fólksins sem leigði bústaðinn, gaman að fylgjast með því;)

Laugardagskveld: Horfði á myndina A Scanner Darkly(2006) með Stykka, Halla og Davíði. Framtíðarmynd sem hrærði virkilega í hausnum á okkur öllum, var tekin upp og teiknuð síðan, skemmtileg útkoma:
Photo of A Scanner Darkly, Woody Harrelson
Þessi ljóshærði er bartender-inn Woody úr Cheers.
Síðan var bara rúntað eitthvað frameftir kvöldi og síðan fór ég að hitta Erlu:D

Leiðinlegt að helgin sé að taka enda, er bara svo innilega ekki að nenna í þennan Mánudag, skóli frá 8:00 - 17:30 og engin eyða.. badsjit.
En jáá, núna er ég að fara horfa á Dude, Where\'s my car?!?!? þannig bæ.

Lag: The Mars Volta - Meccamputechture & Viscera Eyes (þessi hljómsveit er bara á góðri leið í að verða uppáhaldshljómsveitin mín, sjeeetturinn!)

"later á gamla"
.

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 12:05:34 / Snaevar

1 okt

Frábært að það séu komin mánaðarmót.
Allir fóru á ball í gær, en ekki hann snævar, hann drakk víst aðeins of mikið... hahaha ég er varla að trúa þessu núna..
Næst verður það bjór, og bara bjór.

Shitmaður, á föstudaginn þá fékk ég að prófa litla mótorhjólið nikka og þetta er geeeðveikt gaman! Mig dauðlangar í svona dótarí..

En núna ætla ég að renna niðrá Ábæ og láta Arnar gera feitan hamborgara fyrir mig.

Lag dagsins: Muse - Citizen Erased (búnað hlusta á þetta lag svona 8.316 sinnum)

For one moment
I wish you'd hold your stage
With no feelings at all
Open minded
I'm sure I used to be so free             
 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 13:14:08 / Snaevar

plu

Sælt veri fólkið.

Jææja, þá er maður loksins kominn með internetið hingað niður í herbergið mitt og það þýðir bara blogg!
Það er varla hægt að komast í gegnum bæjinn núna! annar hver vegur lokaður, risa vinnuvélar útum allt, maður er bara búinn að vera keyra meira á göngustígunum núna en götunni. Gaman afþví:D

Omg, Ísland á örugglega eftir að heita Pólland eftir svona 3-4 ár. Það er allt að fyllast af pólverjum hérna, þurfti að fara út í sláturhús á Föstudaginn í vinnuni og ég vissi ekkert hvar ég átti að fara inn, svo þýddi ekkert að spurja þessa pólverja að neinu.. þeir eru ekkert mikið í því að reyna blanda geði. I don´t like them.. gerir það mig að rasista?

Heyrðu, horfði á klikkaða mynd með Erlu á fimmtudaginn, Silent Hill! Mynd byggð á e-m svakalegum hryllings tölvuleik. Útkoman er frekar spes, frekar öfgakennt allt en það er bara gaman af því, endilega tjékkið á henni:D

"Sæt mynd"

Helgin var ekki mjög spennandi frá mínu sjónarhorni, þar sem ég var að vinna alveg fullt.. En jáá, ég kíkti eitthvað út í gær eftir vinnu (1:00) fór í eitthvað partý hjá svertingjunum sem var alveg stórskrýtið, fólk bara stóð þarna á göngunum, horfði á hvort annað og sagði ekki neitt! Síðan fór maður á Ólafshúsið og þar var fullt hús, mestallt fullorðið fólk og ég stoppaði ekki lengi þar, síðan á kaffi krók voru svona 4 fólk (með trúbadornum). Þannig ég fór heim til Söndru og þar var ágætis sófapartý og síðan fóru allir í twister og e-h jack. Síðan lá leiðin aftur til blökkumannana og þá var fólkið búið að færa sig yfir í sófann:D flestallir áfengisdauðir og hahah svo labbaði maður óvart inná 'eitthvað' par þarna.. úúps! Og á endanum fór ég síðan niðrá fornósinn og var að tala við Erlu heillengi útí bíl, og þar var víst e-h svaka í gangi, rúða brotin og læti..!
En maður verður bara vongóður með næstu helgi, hún er frekar efnileg.



Hef samt ekkert mikið meira að segja, ég er orðinn frekar þreyttur persónuleiki...
ble.

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 07:47:45 / Snaevar

omgomgomg, trúi ekki að það sé föstudagur

Já, núna innan skamms fer ég í fyrsta og síðasta tímann minn í dag.. Og það er grunnteikning, auðvelt shit og ég er bara með busum í tímum og eitthvað! Ánefa bestu föstudagar sem hafa lent á stundatöflunum mínum síðustu ár.
Allanvega þá er það sötr í kvöld, þýðir ekkert annað.

Fór í fótbolta á gervigrasinu í gærkvöldi með Arnari Þóri, Halla, Bigga, Sævari(rassaður í klessu), Ísaki, Ómari, Ronna, Sigga Hell(líka rassaður í klessu) og svo var Eiki fiiifty líka þarna.

En jáá, ég nenni samt eiginlega ekkert að blogga neitt, þarf að tannbursta mig og eitthvað shit..
later á gamla.

lag dagsins: Bloc Party - This Modern Love (sjeeetturinn, hef aldrei heyrt í skemmtilegri trommara en í þessari hljómsveit, talandi um fjölbreytni!!)

"Þarna glittir í roskilde armband, mynd síðan 2005"

Don't get offended
If I seem absent minded
Just keep telling me facts
And keep making me smile
Don't get offended
If I seem absent minded
I get tongue-tied
Baby, you've got to be more discerning
I've never known what's good for me
Baby, you've got to be more demanding
I will be yours


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 10:33:23 / Snaevar

hmm


Djöfull þooli ég ekki að vera veikur!!!!

Tímabilið sem sér til þess að maður getur ekki gert neitt skemmtilegt ánþess að verða bara meira veikur..
Þriðjudagar eru með bestu dögum vikunar að mínu mati, eða samkvæmt stundaskránni. Tveir tímar á þessum degi og svo bara frí, gerist varla betra.. er samt reyndar að vinna í kvöld en það er bara fínt. Svo er það Magna-vakan uppí FNV í nótt, maður lætur sig ekki vanta þangað. Það er líka 'gúdsjit' að þurfa ekki að mæta í fyrstu tvo tímana í fyrramálið.
Toby á eftir að vinna Rockstar: Supernova, eða mér finnst hann svona passa langbest við þessa hljómsveit! Ef ekki hann þá er það Magni.. Mér finnst Lukas vera alltof klisjukenndur og öfgafullur persónuleiki og það er eitthvað við röddina hans sem fer illa í mig.

Í Gær var ekki mikið annað gert en að chilla í skólanum, vinna & rúnta.. Fór síðan í fótbolta á gervigrasinu um miðnættið með einhverju fólki. Djöfull er gaman í fótbolta þarna.. sjeeetturinn!
Heyrðu og svo er Bjarki bara fluttur til Ísafjarðar..! og maður náði ekki einu sinni að kveðja kallinn.. Verður líka örugglega skrýtið að sjá engan hvítan bíl á rúntinum lengur:D

Hver heldur þú að vinni Rockstar: Supernova??


it's on!


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 13:13:16 / Snaevar

gott bil.

Jámaður!! Í dag er sniðugt að byrja blogga aftur, ekki það að ég hafi einhverja sérstaka ástæðu til þess, mig bara langar þess.

Önnur vika skólans búin í dag og gengur allt bara nokkuð vel held ég, Nemó er að standa sig þrusuvel og mæli ég með að allir fari inná www.nfnv.is til að fylgjast með gangi mála hérna í skólanum;) Allt morandi líka í nýjum busum, sem var alveg einstaklega gaman að busa í síðustu viku. Núna er maður að byrja sitt þriðja ár hérna í skólanum, og vá hvað manni finnst maður eitthvað vera að eldast þegar maður fylgjist með yngri krökkunum hérna í skólanum, svaakalegt ástand maður..!!
Lífið mitt er líka alveg gífurlega erfitt þessa dagana, þarsem að það er búið að stela 'mínu' eigin sjónvarpi frá mér.. baadsjitt.

Ég veit ekki hvort það sé bara ég eða talvan, en allanvega þá eru eitthvað um 250 gestir búnað koma inná síðuna mína í dag og þetta er fyrsta bloggið mitt í virkilega langann tíma, eða alveg góóða 8 mánuði..!! skrýtið..

Svo er maður búnað vera hlusta á alveg fullt af tónlist síðastliðnu daga, sem maður hefur ekki kynnt sér nógu vel fyrren nú, einsog t.d:
Pendulum: omg, kröftugasta tónlist í heimi.... nuffsaid.
Marz Volta: Söngvari sem getur gert allann skapaðan hlut með röddinni á sér, gítarleikari með gullputta og gjörsamlega geðbiluð stúdíóvinna í orðsins fylstu meiningu. ogváá!! lagið 'The Widow' er bara eitt það besta lag sem ég hef heyrt á ævi minni!
Audioslave: Góð hljómsveit sem mig langar einstaklega mikið að sjá live, flott gítar-riff í öllum lögunum (bara klikkar ekki) og svo er skemmtilegt hvað þeir setja alveg lúmskt mikið magn af grunge-i í lögin.
og svo miklu, miklu meir sem ég nenni ekki að skrifa núna.

En núna VERÐ ég að hætta útaf því að ég er að vera snar-geðveikur útaf þessari tölvu! Internetið virkar á svona 5 sekúntu fresti og það er fkn pirranid!!! og btw, er að skrifa þetta blogg í annað skiptið útaf því..

He’s got fasting black lungs
Made of clove splintered shards
They’re the kind that will talk
Through a wheezing of coughs
And I hear him every night
In every pore
And every time he just makes me warm
Freeze without an answer
Free from all the shame
Must I hide
'Cause I’ll never never sleep alone
Look at how they flock to him
From an isle of open sores
He knows that the taste is such
Is such to die for
And I hear him every night
On every street
The scales that do slither
Deliver me from....
Freeze without an answer
Free from all the shame
Then I’ll hide cuz i’ll never never sleep alone
Oh lord
Said I’m, Said I’m, Said I’m
Said I’m bloodshot for sure
Pale runs the ghost
Swollen on the shore
everynight
in every pore
The scales that do slither
Deliver me from…
Freeze without an answer 
Free from all the shame
Then I’ll hide
'Cause I’ll never never sleep alone
Freeze without an answer
Free from all the shame
Let Me Die
'Cause I’ll never never sleep alone


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 12:36:14 / Snaevar

blaaahhhh

Hættur í bili..!


» 26 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 17:55:13 / Snaevar

Eternal Life

Góðan og blessaðan daginn.. Langt síðan maður hefur bloggað og fannst mér tilvalið að gera það núna.

Síðustu dagar eru búnir að vera fínir.. Fór á áramótaball á barnum sem var bara svaka stuð á! Fyrir utan leiðindaatvik sem setti ljótan blett á kvöldið þarna í lokin.. En já, það var eitthver gaur að spila þarna með atómstöðinni á bassa og hann bað mig um að fá að spila á bassann minn þarna á barnum og ég bara leyfði honum það. Svo var ég eitthvað að dansa þarna og leit á sviðið.. Var þá ekki bara bassinn minn á kafi í trommusettinu.. Við erum að tala um 30 og eitthvað ára gamlan grip, alveg antík gripur.. Viðurinn sem er notaður í þennan bassa er útdauður, en þetta er einmitt viðurinn sem endurkastar tónum alveg rosalega vel! Þetta var tilgangslaust, heimskulegt og alveg fáranleg hegðun.. ég verð bara brjálaður að hugsa um þetta. OG ef fíflið sem gerði þetta les þetta má hann senda mér símanúmerið sitt í e-mailið: naevar7@hotmail.com">snaevar7@hotmail.com bara hver sem er, mér vantar nafnið og símanúmerið hjá þessu fullorðna barni.

Skólinn gengur vel fyrir sig.. Er kominn á nýja braut, í verknáminu, þar er alveg allt önnur menning. Það eina sem er talað um þarna eru bílar, bjór, kjéllingar og neftóbak. Þetta er samt alveg sláandi skemmtilegt þarna.

Svo á föstudaginn fór ég á akureyri með Arnari og Rabba.. Við gerðum alveg ýmislegt þar t.d að fara í bíó (KING KONG) vá þetta er svo geeeeðveik mynd! Hún sló út Titanic (1997) og Spiderman 2 (2004) í að vera dýrasta mynd í heimi.. En já það kostaði aðeins 207 milljónir dollara að gera hana. Mæli með þessari mynd.

Svo fórum við líka á skauta.. Hahaha, það var samt alveg geðveikt gaman.. Við vorum alveg óvenjulega góðir byrjendur. Svo var það subway og eitthvað. Brunuðum svo heim á Laugardaginn.. og ég hélt smá samkvæmi hérna heima hjá mér fyrir ballið.. Já talandi um ballið.. Þetta var frekar skrýtið ball.. Samt gaman. En já það gerðist alveg ýmislegt þarna sem allir eru örugglega búnir að frétta þarna ég nenni ekki að tala um það.

Vaknaði í morgun frekar þunnur.. En mér til allrar hamingju rakst ég á Alka Seltzer hérna heima og viti menn, þetta þrælvirkar! Algjört undralyf.. Tók rúnt með Arnari og Halla. Kvöldið er óplanað..

JÆJA, læt þetta duga í bili..

Lag síðustu daga: Jeff Buckley - Dream Brother (Ég er ekki búnað vera hlusta á mikið á neitt annað en Jeff síðustu daga.. einn besti söngvari í heimi finnst mér, eða var.. Hann dó svo árið 1997 þegar honum datt í hug í einhverju hugsunarleysi að fara synda í Missisippi ánni í Bandaríkjunum þegar hann og vinur hans voru að chilla hjá ánni.. Þegar hann fór í ánna kom skip siglandi framhjá og þar af leiðandi kom öldur. Hann hvarf.. og fannst 3 dögum síðar drukknaður, fljótandi, fastur í einhverjum greinum.... Yes, I got a little carryed away there en allanvega þá er þetta flott lag.)


SÁ SEM ER NÚMER 20.000 Á SÍÐUNA FÆR EFTIRFARANDI
*17 galvaska gaulverja
*3 metra af gleraugum
*7 lítra af vellíðan

-takk fyrir mig


» 90 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 13:40:25 / Snaevar

VAR AÐ VAKNA!

í gær þá fékk ég að sofa út í fyrsta skipti í öllu jólafríinu mínu, ég að sjálfsögðu endurtók leikin í morgun.. og vá hvað maður getur alveg stokkið á fætur ef maður sefur svona lengi, svo er líka fínt að snúa sólarhringnum við, því það verður tekið á því á morgun.

Ekkert að frétta af mér einsog vanalega, get ekki beðið eftir að fá útborgað, er búnað vera lifa á orlofinu þessa dagana.. Svo er skólinn að fara byrja, ég byrja á nýrri braut, það hlýtur að verða gaman.. skemmtilegra en þetta náttúrufræðisull.

Dagurinn í dag fer ekki í mikið annað en að slappa af.. fer reyndar á hljómsveitaræfingu um 15:00 leitið.. já, ÚFF er að spila á morgun, eftir svona 35 klukkutíma á barnum. Og ég og Fúsi er búnað fá leyfi hjá sýslumanni til að vera á þessu 18 ára balli.. snilld :D takk Binni! Svona er að vera bara 17.. og talandi um þa'ð að vera 17.. Ása er að fara fá bílpróf! djöfull lýður tíminn hratt..

ég læt þetta duga! farinn að fá mér morgunmat..



Lag síðustu daga: Fantomas - Charade (hehe þessi hljómsveit er einsog Queen nútímans, kaflarnir og kaflaskiptingarnar eru hlægjilega margar! Snilldar lag, af disknum Director's cut..)

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 20:37:11 / Snaevar

Pirate Binoculars


Gúd evening.. Já, það er gott að vera í fríi. Fínt að fá að slappa smá af.. Maður gerir ekki mikið annað á daginn núna en að hanga heima, rúnta eða gera bara ekkert. Það væri fínt að fá meiri vinnu. Allanvega í gær þá fór ég að versla jólagjafir með Arnari Þóri, fengum góða hjálp frá Elsu, Völu og Andreu. Svo fór ég aftur að versla í dag með Halla og er ég nú búinn að kaupa allar jólagjafir! Já svo fékk ég jólagjöf í dag, var á Esso að taka bensín, fór inn og borga og þá alltíeinu segir Binni mér að ég hafi unnið verðlaun! Hvað haldiði að kallinn hafi unnið?! Gullsjónauka, shiiit sko. Merkilegt haaa...

Dýrðargripur?

Allanvega þá blogga ég örugglega ekki fyrren milli jóla og nýárs þannig óska þér bara gleðilegra jóla og farsælt komandi árs.

Lag jólanna: Jamarioquai - Canned Heat (shiiiiit! geeeeeðveikur bassi!!!!!)


» 14 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 04:20:04 / Snaevar

blúbz

Hoj, ætlaði bara að droppa inn hljómsveitarlausninni,

Gúd Næd



Lag dagsins: The White Stripes - There\'s No Home For You Here

» 91 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 15:14:10 / Snaevar

Jólafrí!?!?!?

já, það er komið jólafrí! það er helvíti fínt finnst mér.

Langaði að smella inn einni sniðugri mynd
*þú átt að reyna að sjá út hljómsveitarnöfn á hlutunum á myndinni t.d górillurnar þarna eru Gorillaz.!
*ef þið fattið eitthvað getið þig sagt frá því í commenti!
*það eru 72 hljómsveitir!
*lausnir við öllum hljómsveitinum fylgja næsta bloggi!


Lag dagsins: Prodigy - Voodoo People (Pendulum Remix)

» 101 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 17:03:01 / Snaevar

Times like these

Live your life like theres no tomorrow..

Ég get ekki annað en hlegið, að vera með þennan hugsunarátt er baaaara heimskulegt. Kannski gaman fyrsta daginn... en ekki meira.
En í sambandi við persónuleg samskipti þá er þetta svoldið sniðug lína.

Heyrðu, haldið ekki að Íslendingurinn hún Unnur Birna hafi ekki bara unnið Miss World. Nú getum hin verið stolt af þessu, Íslendingar loksins orðnir góðir í einhverju.


Í gær fór ég í eðlisfræðipróf, skeit allsvakalega og margsinnis í mig þar. Þetta var alls ekki góð byrjun á föstudegi.. en svo fór maður á tvær hljómsveitaræfingar og það hressti mann aðeins upp. Var samt að drepast í puttunum, gat varla spilað um kvöldið á þessu Samfés dæmi, risablöðrur fremst á puttunum. En allanvega þá spilaði ég þarna á Afmæli Samfésar, ég spilaði fyrst með Hip Razical þrjú frumsamin lög og tókst það bara ágætlega og svo spilaði ég tvisvar í viðbót með ÚFF og það gekk mjög vel. Nánari uppl. á www.blog.central.is/uff . Eftir hátíðina var svo rúntað með Stjána og Binna. Við fórum á ýmislegustu staði og það var bara mjööög fínt...

Snævar - sáttur með góðan föstudag

Núna er maður samt að fara vinna og líklega eitthvað frammá nótt.... Djamm eftir vinnu!

Sjáumst!


Lag dagsins: Pink Floyd - Another Brick In The Wall (Binni var að kenna mér þetta lag bara nokkrum mín áður en við fórum á sviðið í gær og það tókst furðu vel! allanvega þá er þetta æðislegt lag og æðisleg hljómsveit)


» 113 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3